UM RÁÐGJAFANN
Elsa Heimisdóttir hefur starfað innan mannauðs- og stjórnunarmála frá árinu 2000. Hún hefur stýrt breytingum, innleitt kerfi og byggt upp jákvæða vinnustaðamenningu hjá nokkrum af stærstu fyrirtækjum landsins.

| REYNSLA Lagardère Travel Retail – Framkvæmdastjóri rekstrar (COO) og mannauðsstjóri. Stýrði rekstri á átta sölustöðum á Keflavíkurflugvelli ásamt mannauðsmálum og stefnumótun. LS Retail – Framkvæmdastjóri mannauðs (CHRO) á heimsvísu. Mótaði ráðningarferla, þjálfun og bætti vinnustaðamenningu hjá fyrirtækinu. IKEA og Domino’s Pizza – Starfsmannastjóri á vaxtarskeiðum þessara tveggja risa, þar sem áhersla var lögð á skipulagða fræðslu, jákvæða vinnustaðamenningu og innri gæðaferla. Sveitarfélög og smærri fyrirtæki (núverandi) – Ráðgjöf og handleiðsla, þar með talin innleiðing á sálfræðilegu öryggi skv. Dr. Amy Edmondson auk EKKO greininga. Ráðgjafi í vinnustaðatengdum málum hjá Heilsu- og sálfræðiþjónustunni. Fræðsluráðgjafi á vegum Starfsafls í verkefninu: Fræðslustjóri að láni. | MENNTUN M.Sc. í mannauðsstjórnun frá Háskóla Íslands Lokaritgerð: Áhrif efnahagshruns á starfsmenn Náms- og starfsráðgjöf frá Háskóla Íslands Lokaritgerð: Starfsþróun og hlutverk ráðgjafa í fyrirtækjum B.Ed. grunnskólakennari frá KHÍ Lokaritgerð: Japanskt skólakerfi Sjá nánar um feril Elsu á LinkedIn hér. Elsa er Svarfdælingur og Dalvíkingur, búsett í Reykjavík og á Akureyri. Hún fór ung út á vinnumarkaðinn og “lærði að vinna” í fiski sem unglingur. “Reynslan sýnir að þegar ferlar eru hannaðir með fólkið í brennidepli þá næst raunverulegur árangur í rekstri.” |