ÞJÓNUSTAN
REKSTUR MANNAUÐSMÁLA Fyrir fyrirtæki sem vilja faglega stýringu án þess að ráða mannauðsstjóra í fullt starf til frambúðar. Þessi þjónusta skiptist í þrennt: Mannauðsstjóri til láns (skammtímaverkefni) Bráðabirgðalausn eða tímabundin aukning í mannauðsmálum. Innleiðing og afhending á skipulögðum ferlum. Mannauðsstjóri til leigu (langtímasamstarf) Sérsniðið hlutastarf (t.d. 1-2 dagar í viku) þar sem ráðgjafi tekur að sér stefnumótun, daglegan rekstur mannauðsmála og stuðning við framkvæmdastjórn. Handbækur og ferlar Uppsetning starfsmanna- og stjórnendahandbóka frá grunni, verklagsreglur, gerð og uppfærsla nákvæmra starfslýsinga sem styðja við skipulag og skýrleika á vinnustað o.fl. | MANNAUÐSRÁÐGJÖF OG HANDLEIÐSLA Faglegur stuðningur við stjórnendur og starfsmenn á öllum stigum starfsferilsins. Ráðgjöf frá ráðningu til starfsloka Stuðningur við ráðningarferlið (finna rétta hæfileika, vönduð nýliðamóttaka, virk starfsþróun) og farsæl starfslok þar sem faglega er haldið á málum. Fræðsla og starfsþróun Þarfagreining á fræðslu og fræðsluþörf. Gerð raunhæfra fræðsluáætlana sem auka færni og starfsánægju og styðja þannig við rekstur. Handleiðsla og samtöl Handleiðsla fyrir stjórnendur og stuðningssamtöl og/eða viðverusamtöl við starfsmenn. Aðstoð við úrlausnir á samskiptavanda og eflingu vinnustaðamenningar. Ráðgjöf vegna langtíma- og skammtímafjarvista vegna veikinda. | SÁLFRÆÐILEGT ÖRYGGI OG EKKO ÞJÓNUSTA Öruggt og heilbrigt vinnuumhverfi er forsenda þess að teymi nái árangri. Sálfræðilegt öryggi Formlegt mat á stöðu sálfræðilegs öryggis innan teyma. Markviss vinna og vinnustofur til að efla samvinnu, stuðla að virku upplýsingaflæði og gagnkvæmu trausti. Unnið er út frá nálgun Dr. Amy Edmondson. Þessi vinna styður stjórnendur og starfsmenn í að læra af mistökum og stuðla að nýsköpun í öruggu starfsumhverfi. EKKO þjónusta Faglegar og hlutlausar úttektir á vinnustöðum ef grunur eða ásakanir vakna um einelti eða áreitni. Skýrar viðbragðsáætlanir og aðstoð við ágreining sem tryggir lögmæta og vandaða málsmeðferð. |